150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

jöfnun raforkukostnaðar.

[14:11]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Fyrst til að nefna það er kostnaðurinn við flutning vissulega sá sami fyrir alla landsmenn en dreifingin svo sannarlega ekki. Jöfnunargjaldið sem sett var á árið 2015 átti að duga til þess að jafna dreifikostnað en gerir það alls ekki, er ekki nema u.þ.b. helmingur en jöfnunargjaldið í dag skilar um 980 millj. kr. á ári og samkvæmt þeim greiningum sem við höfum verið að vinna að þyrfti það gjald að vera tvöfalt það sem er í dag til að ná fullum jöfnuði.

Ég hef áður sagt að mér fannst alveg koma til skoðunar að hækka einfaldlega þetta gjald, að þetta væri sáralítil hækkun á langflesta en myndi lækka mikið hjá sumum úti á landi. Ég hef líka sagt að eftir mjög villandi umræðu um þriðja orkupakkann myndi ég ekki leggja það til vegna þess að það sem andstæðingar þess máls sögðu var að raforkuverð myndi hækka. Þá ætla ég ekki að koma með hugrakka, heimatilbúna, pólitíska ákvörðun um að jafna dreifikostnað raforku sem myndi hækka raforkuverð flestra örlítið til að jafna kostnaðinn af því að þá myndu hinir koma fram og segja: Sjáið til, nú hækkaði raforkuverðið — en það hefði ekki verið út af umræðu um þriðja orkupakkann heldur út af ákvörðun sem við hefðum tekið.

Aðrar leiðir sem hafa komið til skoðunar eru að vera einfaldlega með eina gjaldskrá, ekki dreifbýlisgjaldskrá annars vegar og þéttbýlisgjaldskrá hins vegar. Svo er sömuleiðis hægt að setja hreinlega á fjárlög eða mögulega einhvers konar bókhaldsbreytingar innan úr þeim fyrirtækjum sem við eigum, dreifiveitunum sem eru ansi margar. Við erum mjög langt komin með þá vinnu í ráðuneytinu í samvinnu við Orkustofnun og fleiri aðila og ég vonast til þess að okkur takist að koma því til framkvæmda. Í mínum huga er þetta mikið réttlætismál. Þetta er auðlind landsmanna allra, raforkan verður til úti á landi og í mínum huga er það sanngirnisatriði að jafna þennan aðstöðumun landsmanna, að dreifikostnaðurinn sé jafn.