jöfnun raforkukostnaðar.
Virðulegi forseti. Ég ætla að draga upp einn punkt úr fyrri ræðu minni og það er styrking dreifikerfisins og leiðir til þess. Hvað varðar kostnað ætla ég að beina sjónum mínum að smávirkjunum sem eru skilgreindar minni en 10 MW. Þeim hefur fjölgað á undanförnum árum og eru kostir þeirra margir. Þar flæðir umhverfisvæn orka og lítil náttúruröskun verður. Þær tengjast kerfinu um dreifiveitur landsins og styrkja þannig flutningsleiðir, lækka flutningstap og lækka rekstrarkostnað, vilja sumir meina. Því langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái möguleika á því að með fjölgun smávirkjana sé dreifikerfið styrkt þannig að það myndi leiða til lækkunar dreifikostnaðar í dreifbýli.