150. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2019.

jöfnun raforkukostnaðar.

[14:14]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég tel að það séu möguleikar á því að lækka dreifikostnað með fjölgun smávirkjana. Það er sömuleiðis ákveðið útfærsluatriði. Kerfið sem við erum með í dag er auðvitað bara mannanna verk og ekki endilega fullkomið kerfi eins og það er. Með ákveðnum breytingum og tilfærslum gætum við leyst úr læðingi ákveðna krafta í þá veru og breytt hagkvæmni smávirkjana heilt yfir. Það hefur verið lögð töluverð áhersla á smávirkjanir undanfarin misseri og kostir þeirra greindir. En eitthvað gerir þó að verkum að það er ekkert svo mikil uppbygging enn sem komið er og kannski er eitthvað í regluverkinu sem gerir það að verkum. Það er nú bara í næstu viku málþing á vegum Orkustofnunar og mögulega fleiri sem munu reyna að kortleggja það enn frekar af því að þetta er bæði byggðamál og getur skipt töluverðu máli fyrir kerfið í heild, aukið (Forseti hringir.) hagkvæmni þess og treyst það.