152. löggjafarþing — 12. fundur,  16. des. 2021.

atvinnuleysistryggingar.

[14:36]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að gefast upp á að svara spurningunni sem hv. þingmaður spurði mig hér í upphafi. Þeir sem eiga aðeins rétt til grunnatvinnuleysisbóta fá 6% af grunnatvinnuleysisbótum til viðbótar með hverju barni frá þeim degi sem þeir byrja að fá greiddar atvinnuleysisbætur. En það er þó ekki útilokað að einhverjir sem eru með börn á framfæri fái hærri greiðslu eftir að tekjutengda tímabilinu lýkur ef þeir eru á það lágum launum en þó hærri en svo að þeir falli beint á grunnatvinnuleysisbætur. Það er þá eitthvert bil, og ég skil þá skoðun hv. þingmanns að það þurfi að horfa til þess vegna þess að þar þurfi að líta til einhverrar sanngirni. En svona er þessu nú háttað, og svo hef ég þrjár sekúndur til að svara hverju ráðherrann ætlar sér að ná fram með endurskoðuninni og ætli ég verði þá ekki að bíða með það.