155. löggjafarþing — 12. fundur,  8. okt. 2024.

staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði.

51. mál
[16:09]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að hv. þingmaður hljóti nú að vera ruglast eitthvað í ríminu því að sá þjóðfélagshópur sem hún vísar í og spyr hvort þurfi að skattpína meira — hv. þingmaður verður að átta sig á því að þessi 37% hafa þegar verið tekin af þessu fólki en það liggur eftir inni í lífeyrissjóðunum. Lífeyrissjóðurinn hefur undanþágu frá því að skila þessum fjármunum sem þegar hafa verið teknir af okkur og við greiðum ekki af þeim skatta fyrr en við förum að taka út úr lífeyrissjóðunum okkar á seinni æviskeiði. Þannig að það er ekki eins og við séum að mæla hér með því að einstaklingar sem ekki eru þegar að greiða skattinn — við höfum enga undanþágu frá því að skila okkar staðgreiðslu. Við skilum okkar staðgreiðslu en í stað þess að skila henni inn í ríkissjóð þá skilum við henni inn í lífeyrissjóðina.

Ég vil að þessir peningar fari inn í ríkissjóð. Ríkissjóði veitir ekki af þessu fjármagni, hv. þingmaður. Eins og ég segi þá byggir þetta á einhverjum misskilningi. Það er bara þetta sem ég hef að segja: Við erum ekki að auka skattbyrði á þennan hóp sem er að koma sér þaki yfir höfuðið, þvert á móti. Það er þegar verið er að taka af honum staðgreiðslu eins og öllum öðrum. Það er ekki ein einasta króna á þessu tímabili uppbyggingar heimilis og umhyggju sem þarna er um að ræða, ekki ein sekúnda og ekki ein einasta króna, hv. þingmaður.