framhald þingstarfa.
Virðulegur forseti. Hv. þingmenn Mörður Árnason og Björn Valur Gíslason kasta hér með kunnuglegum hætti steinum úr glerhúsi. Það vita auðvitað allir um hvað þetta snýst. Þessi ríkisstjórn er ófær um að koma málum áfram í þinginu. Hér er talað um mikilvæg mál sem þessi ríkisstjórn hefur ætlað að leiða til lykta á þessu þingi, eins og rammaáætlun sem ekki hefur verið rædd í þrjár vikur í þeirri þingnefnd sem hefur það mál til meðferðar. Það sér hver maður hvaða heilindi eru á bak við slíkan málflutning þegar talað er um að af þremur helstu málum ríkisstjórnarinnar séu tvö enn í nefnd. Stjórnarandstaðan hefur bara ekkert að gera með það. Við etjum við innanmein ríkisstjórnarflokkanna þó að reynt sé að vera hér með aumlegt yfirklór yfir þá staðreynd máls. Ég held að það fólk sem þá flokka skipar (Forseti hringir.) ætti nú að fara til síns heima og gefa þinginu og þjóðinni frí frá þessum vinnubrögðum og reyna að leysa (Forseti hringir.) úr sínum innri meinum og boða síðan aftur til þings þannig að við getum klárað málin með eðlilegum vinnubrögðum.