139. löggjafarþing — 125. fundur,  17. maí 2011.

heræfingar NATO hér á landi.

[14:19]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Mér fannst þetta furðulitlar upplýsingar frá hæstv. ráðherra sem ber ábyrgð á þessum málaflokki og ef ég misskildi hann ekki bað hann mig um að tala við flokksfélaga mína um málið en síðast þegar ég vissi var hv. þm. Ögmundur Jónsson hæstv. ráðherra á þessu sviði en ekki Björn Bjarnason eða aðrir flokksfélagar mínir sem stundum voru gagnrýndir. Ég var bara að hrósa hæstv. ráðherra og bað hann bara að upplýsa hvað væri hér á ferðinni og hann benti á það sem er augljóst að auðvitað er ekki bara um hernaðaræfingar að ræða heldur snýr þetta ekki síður að, og þetta tengist órofaböndum, varnar- og öryggismálum eins og hæstv. ráðherra sem ber ábyrgð á málaflokknum þekkir.

Ég veit ekki af hverju hann tekur það svona illa upp þegar ég hrósa honum fyrir að standa að þessum æfingum. (Gripið fram í.) Ég vona bara að þær fari afskaplega vel fram og við verðum áfram ábyrgir aðilar í varnarstarfsemi NATO og ég treysti ráðherranum til að fylgja þessu máli vel eftir.