152. löggjafarþing — 13. fundur,  20. des. 2021.

varamenn taka þingsæti.

[09:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Í dag, mánudaginn 20. desember, tekur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkur varamaður hennar, Eva Sjöfn Helgadóttir af þingi.

Borist hafa bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að eftirfarandi þingmenn muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni: Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurk., Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykv. s., Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvest., Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þm. Reykv. n. og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest.

Jafnframt hefur borist bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Oddný G. Harðardóttir, 8. þm. Suðurk., muni ekki getað sinnt þingstörfum á næstunni.

Í dag, mánudaginn 20. desember, taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau 1. varamaður á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi, Þórunn Wolfram Pétursdóttir, 1. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Elín Anna Gísladóttir, 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Thomas Möller, 1. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Daði Már Kristófersson, 1. varamaður á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi, Viktor Stefán Pálsson, og 1. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Jón Steindór Valdimarsson.

Jón Steindór Valdimarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.