140. löggjafarþing — 13. fundur,  20. okt. 2011.

upplýsingar á heimasíðu ráðuneytis.

[11:05]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Eins og kom fram í umræðunni rétt áðan, án þess að ég ætli að fara efnislega í hana, virðist vera sem svo að heimasíða efnahags- og viðskiptaráðuneytisins sé orðin að einhvers konar skáldsögu sem setur þar fram upplýsingar og (Forseti hringir.) staðreyndir sem ekki er fótur fyrir í skýrslunni um mál … (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁRJ): Um fundarstjórn forseta. Það er ekki efnisleg umræða áfram um þau mál sem voru rædd áðan.)

Í framhaldi af því, frú forseti, (Forseti hringir.) legg ég til að forseti og Alþingi leggist yfir það og skoði hvort þetta sé rétt (Forseti hringir.) því að þetta er alvarlegt mál.