desemberuppbót.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. En þessi hópur sat líka eftir síðast. Þessi hópur hefur ekki fengið neinn stuðning í Covid. Þetta er mjög viðkvæmur hópur. Þetta er hópur öryrkja sem eru orðnir ellilífeyrisþegar. Þetta er hópur sem er með búsetuskerðingar og, eins og ég sagði áðan, fær 10% minna en lægsti ellilífeyririnn er og krónu á móti krónu skerðingar. Ég spyr mig: Er ekki jafnrétti? Er ekki réttlæti? Eigum við ekki að sjá til þess að við séum ekki alltaf að skilja einhverja út undan? Er ekki kominn tími til þess að aldrað fólk — við erum að tala um aldrað fólk og jafnvel veikt aldrað fólk — er ekki kominn tími til þess að við sýnum því þá virðingu að það fái þá að minnsta kosti það sama og við erum núna að láta öryrkjana fá?