endurnýjun tölvukerfa.
Forseti vill geta þess að að undanförnu hefur verið unnið að endurnýjun á þeim tölvukerfum sem stuðst er við bæði hér í þingsalnum og í þingfundadeild. Eldri kerfi voru komin nokkuð til ára sinna og ný kerfi eru bæði öruggari og bjóða upp á betra viðmót fyrir starfsfólk. Þingfundakerfin hafa verið tekin í notkun í áföngum og í þessari viku hafa forsetar sem stýra þingfundi verið að styðjast við nýja útgáfu af Stýru hér í forsetaborðinu en Stýran heldur m.a. utan um mælendaskrá og ræðutíma þingmanna. Það má segja að það sjái nú loks fyrir endann á þessari endurnýjun tölvukerfanna og verður það mikill áfangi fyrir öll störf hér í og við þingsalinn.