afskipti ráðherra af brottvísun og birting gagna.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Varðandi skráninguna þá segir hér, með leyfi forseta: „Dómsmálaráðherra sendir sitt svar klukkan 07:46:“
Þetta er í kjölfar samskipta hæstv. dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóra og þar segir orðrétt í málaskrá ráðuneytisins, með leyfi forseta:
„Frá Bjarna: Ákvörðun um brottvísun stendur eðli málsins samkvæmt. Óska eftir að framkvæmd brottvísunar verði frestað í þeim tilgangi að tækifæri gefist til að eiga samráð innan stjórnarinnar. Óskað er eftir því af ráðherrum.“
Frá Bjarna — það verður ekki annað séð úr þessu en að þótt endanlega ákvörðunin sé á milli dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóra þá blasi við að dómsmálaráðherra er með býsna skýrum hætti að reyna að hengja ákvörðunina um hálsinn á forsætisráðherra í þessu tilviki. Þannig að ég spyr hæstv. ráðherra bara þó að hann hafi sagt það hér í fyrra svari: Var ákvörðunin forsætisráðherra eða dómsmálaráðherra?