auglýsingastjóri og dagskrárráð Ríkisútvarpsins.
Forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir svörin og ég ætla hvorki að þrátta um það við hana né yfirmenn á RÚV ohf. hversu hugmyndaríkur og lipur starfsmaður Einar Logi Vignisson er, enda ekki um hann einan að ræða heldur einnig, samkvæmt frétt DV, markaðsstjóra RÚV ohf. sem ég veit af eigin reynslu að er bæði hugmyndaríkur, skemmtilegur, gáfaður og snjall en á ef til vill ekki af þeim sökum að sitja í dagskrárráði sjónvarps. Ég held að kannski sé skynsamlegast að taka ekki mikið mark á þessum svörum frá RÚV ohf., það er öllum ljóst hvað þar hefur verið að gerast. Til þess standa auðvitað ákveðnar ástæður, sérstaklega peningaleysi hjá stofnuninni en hún hefur brugðist þannig við og einkum á síðustu þremur árum að auka þátt auglýsinga eins og hún getur í starfi sínu og því miður blandað saman auglýsingum og dagskrá. Þetta er umkvörtunarefnið hjá Sigmari Guðmundssyni, sem minnst var á í ræðu minni áðan upp úr bloggi Eiðs Guðnasonar, og þetta er almælt meðal hlustenda á landinu, þeirra sem enn þá leggja eyrun við.
Það er kannski hvorki rétt né sanngjarnt að kvarta yfir þeim þætti einum en Ríkisútvarpið ohf. virðist hafa verið ógæfuskref sem þyrfti að taka upp allt að nýju. Þetta er ekki nema einn þáttur af því. Annar er sá að það virðist algerlega stjórna sér sjálft, þ.e. útvarpsstjórinn stjórnar því og er ekki ábyrgur fyrir einum eða neinum og gefur svör af þessu tagi. (Forseti hringir.)
Kannski má segja að lokum að það ætti a.m.k. að hætta að halda upp á 80 ára afmæli fyrirtækis (Forseti hringir.) sem er alls ekki 80 ára, heldur getur það haldið upp á þriggja ára afmæli sjálfs sín en látið Ríkisútvarpið í friði með sín 77 ár, (Forseti hringir.) en við ættum í raun og veru að endurreisa það og lengja líf þess. (Forseti hringir.)