145. löggjafarþing — 14. fundur,  5. okt. 2015.

beiting Dyflinnarreglugerðarinnar.

[15:15]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Það er rétt að biðin hér hefur oft verið löng og margir hafa meira að segja sagt að hún sé með því ómannúðlegra í kerfinu, það að fólk búi hér í einhvern tíma vegna þess að það fær ekki úrlausn sinna mála og fær ekki að vita hvort það fái að vera hér áfram eða ekki.

Hér eru einstaklingar sem hafa þurft að búa við þetta lengi og mér finnst að við getum ekki látið eins og þau mál séu eins og hin sem eru nýkomin inn á borð. Við verðum að bera ábyrgð á þeim töfum. Við verðum að stuðla að því að fólk fái afgreiðslu eins hratt og mögulegt er.

Svo vil ég árétta og spyrja hæstv. ráðherra hvort skilningur hans sé sá sami og minn, að okkur beri engin skylda til að beita Dyflinnarreglugerðinni til að henda burt málum sem við getum tekið til efnismeðferðar hér. Telur ráðherrann ekki að við ættum að taka upp það verklag að hér séu fleiri mál tekin til efnismeðferðar og ég leyfi mér að segja öll þar sem upprunaríkið er Ítalía, Grikkland eða Ungverjaland?