150. löggjafarþing — 14. fundur,  9. okt. 2019.

svör við fyrirspurnum.

[15:05]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur heyrt hvað hv. þingmenn segja og deilir áhyggjum með þeim af því að það eru of mikil brögð að því að lengi dragist að svara fyrirspurnum. Þá má og nefna það sem hefur borið á góma í nefnd um endurskoðun þingskapa, að styrkja þarf stöðu Alþingis hvað varðar það að taka af öll tvímæli um að eftirlitshlutverk Alþingis taki sömuleiðis til sjálfstæðra ríkisstofnana, ekki eingöngu til þeirra hluta starfsemi framkvæmdarvaldsins sem eru á beina stjórnsýslulega ábyrgð ráðherra. Þetta tengist máli sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson nefndi.

Forseti hefur meðtekið þetta og málið verður athugað.