stöðugleikaskattur.
Virðulegur forseti. Ég þakka framsögumanni minnihlutaálits fyrir framsöguna. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður velti fyrir sér þessum tveimur leiðum sem við getum kallað svo, þ.e. skattaleiðinni og stöðugleikaframlagsleiðinni, og bar þar saman fjárhæðir sem reifaðar eru strax í inngangi í nefndaráliti minni hlutans. Fjárhæðir eru settar fram og ber þar nokkuð í milli. Hv. þingmaður spurði: Er nóg að gert með stöðugleikaframlaginu? Ég vil spyrja þingmanninn hvort hann geti verið sammála mér að það sé ekki endilega líku saman að jafna í eðli sínu skattinum og þessu stöðugleikaframlagi. Skatturinn er til dæmis rökstuddur meðal annars með bólgnum krónueignum slitabúanna.
Hvað stöðugleikaframlagið varðar, af því að hér hefur margoft verið nefnt að stöðugleikaskilyrðin liggi ekki fyrir í töfluformi einhvers konar líkana, þá liggja fyrir erindi nokkurra slitabúa sem bárust — og ég árétta það, ég sé það á heimasíðu fjármálaráðuneytisins — stýrinefnd um losun fjármagnshafta degi eftir fundinn fína í Hörpu, eins og hann var orðaður. Þar leggur til dæmis eitt slitabúið til, ég sé það, að það muni beita sér fyrir því að Arion banki verði settur í sölumeðferð og að Kaupþing, þetta er erindi frá Kaupþingi, muni endurfjármagna fyrirgreiðslu stjórnvalda til Arion banka í erlendri mynt. Er hv. þingmaður sammála mér að atriði eins og þessi geti haft þau áhrif (Forseti hringir.) að ekki sé rétt að bera saman þessar krónufjárhæðir, eins og gert er í inngangi minni hluta nefndarálits?