um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp til þess að lýsa hneykslan minni á þeim orðum sem hæstv. dómsmálaráðherra lét falla hér áðan þegar ráðherra fór að grafa undan því sjálfsagða eftirlitshlutverki sem þingmenn og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafa. Hæstv. dómsmálaráðherra vitnar í grein á mbl.is þar sem vitnað er í hv. þm. Jón Þór Ólafsson þar sem hann lýsir þeirri vel þekktu afstöðu sinni að auðvitað eigi dómsmálaráðherrann að víkja. Það eru varla fréttir fyrir hæstv. dómsmálaráðherra. Sjálfur sagði ég það sama í gær, að hæstv. ráðherra ætti að víkja. Það er linnulaust verið að kalla eftir því að Píratar og aðrir leggi fram vantrauststillögu. Ástæðan fyrir því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur áfram að vinna að málinu, og við hreyfum engum mótbárum við því, er sú að það er sanngjarnt, það er málefnalegt. Það er málefnalegt að allur þingheimur hafi allt sem allur þingheimur þarf til að taka upplýsta ákvörðun um það hvort þetta þing treystir þessum ráðherra. Það að grafa undan því í einhverjum pólitískum tilgangi til þess að koma sér undan eigin ábyrgð er algjört hneyksli. (Forseti hringir.) Það er algjörlega óboðlegt. (Forseti hringir.) Ég krefst þess að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) biðjist afsökunar á þessum fáránlegu orðum (Gripið fram í: Heyr, heyr.)