fjárlög 2022.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ríkisvaldið getur haft áhrif á sveitarfélög. Það hefur fjárhagslega getu til þess og líka lagasetningarvald. Ég tel að ef sveitarfélög í landinu sinna ekki þessari skyldu um lóðaframboð þá verði ríkisvaldið einfaldlega að grípa í taumana með ákveðnum hætti. Það er algerlega óásættanlegt að stærsta sveitarfélag landsins byggi ekki nægilegt húsnæði fyrir íbúana, fyrir þá Íslendinga sem vilja búa á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjavík. Það er algerlega óásættanlegt.
Ef ég skildi rétt athugasemd hv. þingmanns varðandi breytt ráðuneyti þá er náttúrlega verið að rýma fyrir með auknu fjármagni til þess. En ég tel að ráðherrakapallinn sé að mörgu leyti vanhugsaður, bæði formið, hvernig þetta er gert, varðandi forseta, lagabreytingar og þingsályktunartillöguna, svo ég tali nú ekki um heitin, og eins hvernig málefnasviðum er skipt á milli ráðuneyta. Vonandi endurskoðar ríkisstjórnin það mál allt frá grunni.