155. löggjafarþing — 15. fundur,  17. okt. 2024.

Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.

[10:39]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér tilkynningu forsætisráðherra um þingrof og kosningar á krefjandi tímum í efnahagsmálum og upp er komin staða sem varðar okkur öll. Sunnudaginn 13. október upplýsti forsætisráðherra mig óformlega um þá fyrirætlan sína að leggja fyrir forseta tillögu um að rjúfa Alþingi og boða til kosninga, sbr. 24. gr. stjórnarskrárinnar. Í beinu framhaldi hélt forsætisráðherra blaðamannafund þar sem hann gerði grein fyrir þessum áformum. Næsta dag, mánudaginn 14. október 2024, hélt forsætisráðherra til fundar við forseta Íslands þar sem hann bar upp tillögu sína um þingrof. Fundurinn fór fram án þess að tillagan hefði áður verið rædd á fundi ríkisstjórnar. Daginn eftir, þriðjudaginn 15. október 2024, hélt forsætisráðherra aftur á fund forseta og lagði þar fram beiðni um lausn frá embætti fyrir hönd sína og ráðuneytis síns, sbr. 15. gr. stjórnarskrárinnar. Sú beiðni hafði heldur ekki verið rædd í ríkisstjórn. Sama dag gaf forseti frá sér yfirlýsingu um að fallist væri á tillögur um þingrof og lausnarbeiðni forsætisráðherra.

Forsætisráðherra gerði framangreindar ráðstafanir allar án þess að þær hafi fyrst verið ræddar í ríkisstjórn. Það uppnám og vandræðagangur sem á eftir fylgdi eru afleiðing þess að forsætisráðherra hafði ekki undirbúið neitt og tók í raun ákvörðun og ákvarðanir sem formaður Sjálfstæðisflokksins en ekki sem forsætisráðherra. Formsatriðum verður svo ekki í raun fullnægt fyrr en á ríkisráðsfundi síðar í dag þar sem hin lögformlegu ríkisstjórnarskipti fara fram. Við tekur stjórn sem þingflokkur VG hefur ákveðið að eiga ekki aðild að enda myndi þá innan hennar ríkja fullkomið vantraust þar sem Bjarni Benediktsson hefur reynst óhæfur til að leiða ríkisstjórn. Og það er ekki gott fyrir fólkið í landinu. Þar með er það skýrt að tímabili formlegs samstarfs VG við Sjálfstæðisflokkinn er lokið.

Það er sögulegt og áhugavert hvað það er sem rekur forsætisráðherra til að rjúfa sjö ára samstarf einhliða og í fjölmiðlum. Líkast til eru það flokkshagsmunir og hagsmunir hans sjálfs sem foringja í kreppu sem vega þar þyngst. Það er hans mat. Fram kom að herská stefna gagnvart hælisleitendum og meintur orkuskortur var þar sem Bjarni Benediktsson kaus að láta brjóta á. En viðfangsefnin eru önnur, efnahagsmál og húsnæðismál vega þar þyngst og baráttan við verðbólguna og vextina. Lífskjör venjulegs fólks áttu að mati okkar Vinstri grænna að vera viðfangsefni ríkisstjórnarinnar á hennar síðustu mánuðum en Sjálfstæðisflokkurinn var ekki tilbúinn í þá vegferð. Þessi sjónarmið voru skýr á ársfundi ASÍ sem og þingi BSRB á dögunum; áherslan á félagslegar lausnir, og um það eiga kosningarnar snúast.

Alþingi þarf að leysa úr fjölmörgum viðfangsefnum. Afgreiðsla fjárlaga er ekki einfalt mál. Þingflokkur VG mun nálgast það verkefni af ábyrgð í þeim þingnefndum sem við á. Nú sem aldrei fyrr mun forystufólk flokkanna þurfa að vera bæði lagið og lipurt við úrlausn mála og ljóst að breiða samstöðu þarf í þágu samfélagsins alls. Þingið getur sameinast um það. Verkefnið er skýrt. Kosningar eftir 45 daga er staðreynd. Á þeim tíma þarf að leggja fram áherslur, manna lista og ganga á fund kjósenda um allt land. Málefnaáherslur VG liggja fyrir eftir nýafstaðinn landsfund: Efnahags- og húsnæðismál á félagslegum grunni. Það er það sem við heyrum í samtölum við fólk. Það er brauðstritið og að venjulegt fólk þurfi ekki að keppa við moldríka fjárfesta um húsnæði. Almannaþjónustuna og auðlindir verður að verja frá yfirgangi fjármagnsaflanna og kredduhugmyndum markaðarins, hugmyndum sem eru líka hluti af kynjakerfinu. Sótt er að réttindum kvenna um allan heim og þann árangur þarf líka að standa vörð um hér á landi. Við ætlum ekki til baka. Loftslagsváin, möguleikar komandi kynslóða og vandi vistkerfanna eru líka verkefni líðandi stundar og við þurfum enn eina ferðina að reisa varnir fyrir náttúru Íslands.

Virðulegi forseti. Við lifum áhugaverða tíma í stjórnmálum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur verið hluti stjórnmálasögunnar nú í 25 ár þar sem við höfum átt sæti í ríkisstjórnum í alls 11 ár og sett okkar mark á samtímann með mikilvægum ákvörðunum af félagslegum toga. Nú er komið að næsta kafla og við búum okkur undir að hitta kjósendur sannfærð um erindi okkar. Baráttan er rétt að byrja og við erum tilbúin.