157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

stöðugleikareglan og skattahækkanir.

[11:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir spurninguna. Það er eitt sem veldur mér áhyggjum í umræðunum hér og það er þegar skattahækkanir og verðhækkanir eru túlkaðar sem verðbólguhvetjandi. Þetta er algjör misskilningur. Ég nefndi áðan að það má í sjálfu sér draga beina línu á milli skattahækkana og vaxtaákvarðana Seðlabankans til hækkunar. Hvort tveggja er ætlað að hækka verð á vörum og þjónustu til þess að draga úr eftirspurn. Hér þarf að gera alveg skýran greinarmun á annars vegar áhrifum þessara hækkana á vísitölu neysluverðs og hins vegar áhrifum á fyrirbærið verðbólgu sem er undirliggjandi fyrirbæri. Ég held að þetta snjalla fólk sem velst til starfa á Alþingi — við hljótum að þurfa vera sammála um grunninn þarna.

En svo ég víki mér að þeim spurningum sem hv. þingmaður lagði fram þá er alveg rétt hjá henni að tekið er tillit til ákveðinna skattahækkana eða hækkana á gjöldum og til alls sem fram kemur í fjárlagafrumvarpinu um fyrirætlanir um breytingar á innheimtu ríkisins hefur verið tekið tillit til hvað varðar útgjaldaregluna.