Lánasjóður íslenskra námsmanna.
Hæstv. forseti. Um leið og ég óska hv. þingmanni til hamingju með jómfrúrræðu sína þá er þetta því miður ekki besta jómfrúrræðan sem flutt hefur verið á hv. Alþingi. Ég held að samfylkingarmenn í þessari umræðu séu að gera heiðarlega tilraun til að eyðileggja þetta mál. Það kemur ekkert málefnalegt innlegg frá hv. þingmönnum. Þeir fjalla ekki einu sinni um efnisatriði málsins heldur tala um fortíðina. Ég gæti snúið þessu upp á það að spyrja hv. þm. Róbert Marshall: Af hverju er ekkert í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008 til að framkvæma þessar aðgerðir? Af hverju er það ekki í tillögum núverandi ríkisstjórnar fyrir næsta ár að breyta hluta námslána í styrk? Ég gæti tuðað um það í 10, 15 mínútur og eytt mörgum orðum í það. Ég hef bara engan áhuga á því.