152. löggjafarþing — 15. fundur,  21. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:49]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér fjárlög þar sem verið er að taka stórpólitískar ákvarðanir, m.a. um niðurskurð til stofnana sem við eigum saman. Þetta eru fjárlög sem hafa verið afgreidd með hraði, hafa verið unnin undir tímapressu. Umsagnarfrestur hefur verið naumur. Það skiptir ofboðslega miklu máli að þetta frumvarp fái mjög mikla rýni og pólitíska umræðu hér á þinginu og þá þurfa ráðherrar auðvitað að vera til svara. Spurningar vakna um ýmis málefnasvið og eðlilegt er að ráðherrar svari spurningum okkar. Svo ég legg til, ef þetta á í alvörunni að vera svona, af því að maður hefur á tilfinningunni að sumir séu einhvern veginn búnir að gefast upp á þessu og farnir, að það verði þá frekar samþykkt fjárheimild til þess að stofnanirnar geti einhvern veginn haldið áfram nú í janúar og að þetta verði svo bara afgreitt þá. Það er ekki hægt að afgreiða fjárlög með svona miklu hraði og það munu bara verða gerð afdrifarík mistök með þessu áframhaldi. (HVH: Heyr, heyr.)