vegalög.
Frú forseti. Ég mun ábyggilega leggja þessu máli lið og ég veit líka að hæstv. ráðherra hefur áhuga á þessum málaflokki og mikinn áhuga á ferjusiglingum. Ég held að það sé ekki skortur á vilja heldur mögulega skortur á fjármunum. Þetta mál er mikilvægt. Þetta er líka mikilvæg umræða sem fer hér fram um þessa þætti þannig að þetta verði ekki algjör afgangsstærð heldur að við horfum fram á veginn og skipuleggjum endurnýjun á þessum skipum. Ég tek undir með hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni að þetta er mál sem má ekki gleymast. Við hv. þingmenn landsbyggðarinnar þurfum að halda þessu vakandi, það skiptir máli. Ég hef líka horft til fleiri þátta, ekki aðeins ferðaþjónustu til að tryggja áframhaldandi byggð í eyjunum og siglingar. Ég tel líka að við verðum að skoða t.d. milda löggjöf um stjórn fiskveiða. Ég hef verið á þeirri skoðun, hvort sem það eru Vestmannaeyjar eða Grímsey, að menn geti haft þarna einhverja lögsögu í kringum eyjarnar þar sem menn geta verið að nýta nálæg fiskimið með vistvænum veiðarfærum. Mér finnst þetta vera orðið svolítið öfgafullt kerfi ef við getum bjargað byggðinni í Grímsey með t.d. tilraun með að veita frjálsar handfæraveiðar, þó að það væri ekki nema 12 mílur út frá eyjunni. Þá væru engin vandræði varðandi skort á flutningum. Það væri nóg að flytja frá eyjunni enda eru í kringum hana auðugustu fiskimið heims nánast og ég held að það sé einmitt rétt að skoða þá þætti, gera ofurlitla tilraun til að fá líf í þetta. Ég er viss um að þeir aurar (Forseti hringir.) sem kæmu þar inn í hafnargjöldin myndu skila sér að einhverju leyti í ríkissjóð og gera þessa endurnýjun auðveldari.