144. löggjafarþing — 16. fundur,  8. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[18:12]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þar sem enn eru sömu takmarkanir mun ég ekki sætta mig við neina aukningu í neyslu unglinga á áfengi. Ég vænti þess að við náum að vinna betur að forvörnum og lýðheilsumálum út af því að þarna er í tómum ríkissjóði fundin leið til að færa fjármuni úr þessu kerfi inn í lýðheilsumálin. Ég er að vonast til þess að það dragi úr neyslu unglinga og við getum haldið áfram því góða starfi sem hefur verið unnið hingað til.