154. löggjafarþing — 16. fundur,  17. okt. 2023.

Störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Á blaðamannafundi nr. 418 hjá þessari ríkisstjórn fengum við að heyra: Við erum ótrúlega ólík, við erum samt alveg rosalega flink og við erum öflug þótt við séum innbyrðis ólík. Síðan kemur þetta: Við erum búin að ljúka 60% af stjórnarsáttmálanum. Og ef það er eitthvað sem maður hefur lært eftir þessa 418 fundi þá er það að kafa svolítið í það hvað ríkisstjórnin er síðan að segja. Við skulum sjá hvað stendur. Það stendur m.a. að mestur hluti hjá þeim sé kominn vel á veg. Það er ekkert 60%. Mig langar að taka sem dæmi að í stjórnarsáttmálanum stendur að ríkisstjórnin ætli, með leyfi forseta:

„ … leggja sitt af mörkum til að stuðla að umhverfi lágra vaxta, hóflegrar verðbólgu …“

Og hver er staða verkefnisins að mati ríkisstjórnarinnar? Já, það er komið vel á veg. Í hvaða raunveruleika heimi lifir ríkisstjórnin?

Ég hef áhyggjur af því, virðulegur forseti, að ekki er mikill áhugi hjá ríkisstjórninni heldur og það kemur m.a. fram í stjórnarsáttmálanum — ég held að ríkissjóður sé til að mynda nefndur bara einu sinni eða tvisvar. Ég hef verulegar áhyggjur af stöðu ríkissjóðs og hver staðan er núna. Það er verið að velta fjárlagahallanum yfir ekki bara á næstu ríkisstjórn heldur næstu kynslóðir. Báknið er útþanið. Það er enginn sem er við bremsuna. Við sjáum það um leið að hagvöxtur á mann hér á Íslandi rekur lestina innan Evrópusvæðisins. Heildarskattheimta hér á Íslandi, miðað við önnur lönd sem við viljum bera okkur saman við, hún er með því mesta. Samt ætla flokkar hér, hvort sem þeir eru í ríkisstjórn eða aðrir vinstri flokkar, að auka skattheimtu. Viðreisn ætlar ekki að taka þátt í því að leggja meiri byrðar á millitekjuhópa. Við erum tilbúin í samtalið um að hækka auðlindagjöld. Við erum tilbúin í alls konar samtal en við erum ekki tilbúin í það að hækka skatta (Forseti hringir.) á millitekjufólk og fyrirtæki og bjarga þannig þessari óráðsíu sem blasir við á vakt þessarar ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) Þær byrðar verða ekki lagðar á herðar heimilanna og fjölskyldnanna í landinu. Nóg er nú fyrir samt.