skattar og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og það er vel skiljanlegt að spurt sé. Í fjármálaáætlun sem er búið að samþykkja og fjárlögin auðvitað byggja á er horft til ákveðins ferils vaxtar og við höfum vaxið gríðarlega mikið og gert gríðarlega vel á örfáum árum, farið úr 2–3 milljörðum í stuðningi í gegnum þetta kerfi upp í einhverja 16. Að öllu öðru óbreyttu — það sem er að gerast núna og þarf að breyta þess vegna er að ef við gerum ekkert þá fellur út bráðabirgðaástandið sem hefur verið frá Covid og við förum til gamla kerfisins. Á grundvelli skýrslu OECD þar sem voru fjölmargar tillögur er búið að vinna mikla vinnu í samstarfi ráðuneytanna og við hagaðila núna á haustdögum til að reyna að átta sig á því hvernig við getum fellt vöxtinn, sem er gríðarlegur áfram, um 50% ef ég man rétt, sirka inn í fjármálaáætlun. Okkur er ekki alveg að takast það hér. Hér erum við að fara mýkri leið þannig að það er áfram gríðarlegur stuðningur (Forseti hringir.) við nýsköpunarfyrirtæki en við erum engu að síður að reyna að aðlaga fjárlögin að því sem gerast mun og þarf að ríma við fjármálaáætlun framtíðar sem búið er að samþykkja af öllum.