155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

brottfall laga um Bankasýslu ríkisins.

299. mál
[13:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þarf svo sem ekki að lengja umræðuna. Ég tek bara undir að það er eðlilegt að þingnefndin skoði það í sinni umfjöllun með hvaða hætti hún telji eðlilegast að þetta sé gert og hvort það þurfi einhverja lagastoð í þessum lögum til þess.