144. löggjafarþing — 16. fundur,  8. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[18:11]
Horfa

Frosti Sigurjónsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu ræðu og útskýringar. Ég vildi aðeins inna hann nánar eftir skoðunum hans á lýðheilsu og verslunarfrelsi sem ég held að við séum báðir áhugamenn um — aukna lýðheilsu og sem mest verslunarfrelsi. Ég vil ekki saka nokkurn mann um að vera á móti lýðheilsu.

Hve mikla neysluaukningu mundi hv. þingmaður sætta sig við meðal unglinga sem afleiðingu af þessu frumvarpi, þ.e. til að hann teldi enn þess virði að auka verslunarfrelsi á þennan hátt? Hvað má neyslan aukast mikið?