almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki heyrt neinn þingmann hér gera lítið úr stöðu sem einstaka eldri borgarar eða örorkulífeyrisþegar geta verið í á hverjum tíma. Auðvitað er það þannig að einhverjir eru með lægstu launin og að sama skapi eru einhverjir með lægstu bæturnar. Hæstv. ráðherra nefndi hér 2.000 eldri borgara sem hafa einhverjar tekjur sem eru minni en það sem hún nefndi. Það þýðir þá auðvitað að það eru tugir þúsunda eða þúsundir eldri borgara sem hafa tekjur umfram það og mjög margir eldri borgarar hafa verulega ágætar tekjur, sem betur fer.
Spurning mín, ég þarf að ítreka hana aftur: Hefur ráðuneytið og hæstv. ráðherra við samningu þessa frumvarps lagst yfir þessar umsagnir sem allar voru á einn veg hjá þeim sem vöruðu við því að þetta ákvæði myndi ná fram að ganga? Hefur ráðuneytið lagst yfir það og ef svo er, af hverju sér þess ekki stað í frumvarpinu þar sem þessi sjónarmið ættu að vera reifuð og rökin þar (Forseti hringir.) á móti?