verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni fyrir andsvarið og spurninguna. Já, ég er alveg sammála því, við eigum að hlusta á öll þessi samtök og við eigum að hlusta vel. Við eigum að vanda okkur, bæði hér í umræðunni og þegar þetta fer til hv. nefndar, að kalla alla þessa aðila til og hlusta vel og fara vel yfir þessi gögn sem rannsóknir sem við tökum tillit til.
En varðandi þennan forvarnasjóð þá var ég ekki að fara yfir það. Þetta er bara hluti af frumvarpinu. Ég var ekki að beita því sem rökum fyrir kerfisbreytingu, engan veginn. Það var alla vega ekki meiningin í mínu máli.