150. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2019.

staða opinberra framkvæmda.

[15:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég get alveg samsinnt hv. þingmanni, það getur verið gagnlegt að fara reglulega yfir hvort verklag, vinnubrögð og venjur sem hafa skapast í stjórnkerfinu séu nægjanlega vel til samræmis við markmið sem við höfum sett okkur. Ég get greint frá því t.d. að ég hef í minni ráðherratíð haft mikið gagn af þeirri vinnu sem unnin var á vettvangi samráðsvettvangs um aukna hagsæld þar sem farið var ofan í saumana á ýmsum framfaramálum og úrbótum í stjórnkerfinu sem lutu t.d. að innkaupum hins opinbera, bæði á vörum og þjónustu. Að því leyti til held ég að við eigum skýr dæmi úr nýlegri sögu um að þetta hafi skilað árangri og þetta verður áfram til skoðunar.