málefni fátækra.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina þótt það sé raunar ótrúlegt að heyra hann standa hér og halda því fram að ekkert hafi gerst, að ríkisstjórnin sé fullkomlega ómeðvituð um að það sé fátækt fólk í samfélaginu. Hv. þingmaður veit miklu betur en svo að tala á þennan hátt í pontu Alþingis. Við getum talað um eflingu barnabótakerfisins, við getum talað um þær breytingar sem hefur verið ráðist í á undanförnum árum til að bæta kjör öryrkja. Við getum talað um þá staðreynd, af því að hv. þingmaður talar hér um húsnæðiskostnað, að þriðjungur allra íbúða sem hefur verið byggður á undanförnum tveimur árum var byggður vegna félagslegra aðgerða stjórnvalda, vegna stuðnings við almenna íbúðakerfið og vegna nýrra hlutdeildarlána. Við getum rætt um að þessi ríkisstjórn er sú fyrsta sem leggur fram langtímasýn í húsnæðismálum til að tryggja nægjanlegt framboð á hagkvæmu húsnæði svo öll geti haft þak yfir höfuðið, sem er stórmál fyrir húsnæðisöryggi landsmanna. Við getum nefnt þá staðreynd að við tókum upp þrepaskipt skattkerfi og lækkuðum skattbyrði tekjulægsta hópsins. Við getum rætt það hér að við höfum dregið úr skerðingum á öryrkja, bæði milli bótaflokka og vegna atvinnutekna, og við getum rætt það að þessi ríkisstjórn setti lækkun kostnaðar í heilbrigðiskerfinu á dagskrá, setti fram raunverulega, tímasetta áætlun til að draga úr kostnaði sjúklinga þannig að heilbrigðiskostnaður þurfi ekki að vera hindrun fyrir þau sem standa verst. Við getum rætt um að það hafa verið lagðar fram tillögur um hvernig við getum dregið úr fátækt barna og það var þessi ríkisstjórn sem kynnti til sögunnar tómstundastyrki fyrir börn í tekjulægri fjölskyldum. Þessi ríkisstjórn lengdi fæðingarorlofið sem var eitt af því sem lagt var til til að draga úr fátækt barna. Þetta getum við nefnt, þannig að ef hv. þingmaður spyr hvort við séum meðvituð þá erum við það. Erum við að gera eitthvað í þessu? Já, við erum að gera það.