144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

innflutningsbann á hráu kjöti.

[10:57]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Í gær bárust okkur fréttir af því að Eftirlitsstofnun EFTA hefði komist að þeirri niðurstöðu að innflutningsbann á hráu kjöti stæðist ekki ákvæði EES-samningsins. Við höfum séð þróun undanfarinna vikna hvað varðar afurðasölumál í mjólkuriðnaði.

Við þessar aðstæður er óhjákvæmilegt að hugsa landbúnaðarstefnuna í heild og ég vil vitna til mjög góðrar og vel rökstuddrar greinar sem varaformaður Samtaka ungra bænda, Ástvaldur Lárusson, skrifaði fyrir nokkrum vikum, áður en þessi mál komu upp. Þar rakti hann þá hættu sem landbúnaðurinn stæði frammi fyrir við þær aðstæður að stöðugt væru að myndast meiri og meiri brot í þá varnarveggi innflutningshafta og fákeppni sem hafa hingað til verið grundvallarhugmyndin að baki stuðningi við íslenskan landbúnað. Hann rakti að það væri orðið varhugavert fyrir bændur að búa við þetta ástand og að landbúnaðurinn stæði berskjaldaður við þessar aðstæður, það væri spurning, eins og hann orðaði það, frekar hvenær en hvort þessi umgjörð mundi molna.

Ég vil þess vegna spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé ekki sammála mér og varaformanni Samtaka ungra bænda um mikilvægi þess að endurhugsa landbúnaðarstefnuna við þessar aðstæður, búa til umgjörð sem gerir bændum kleift að auka arð af framleiðslu sinni, sækja á markaði fyrir sérvöru erlendis í vaxandi mæli, jafnframt létta á innflutningshömlum, búa þar með til betri sátt milli framleiðenda og neytenda hér í landinu, gefa neytendum aðgang að ódýrari valkostum í landbúnaðarvörum en verja jafnframt afkomu bænda.