144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[14:55]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eitt af því sem þarf að skoða í nefndum og í framhaldi af þessu er einmitt þetta með að verslunin og þetta frjálsræði leiði til hagræðingar. Nú er það þannig að arðurinn af sölu í ÁTVR, þ.e. af rekstrarhlutanum, er 1 milljarður greiddur inn í ríkissjóð. Af þeim tekjum verður ríkissjóður. Hvað kemur þá í staðinn? Hvar leggjum við það á?

Við gætum til dæmis sagt líka að við erum með þá þjónustu í þessu eins og sumar verslanir að boðið er upp á það að vera með sama verð um allt land. Tillagan hér er ekki um það. Það er ekki verðjöfnun í þeim hugmyndum. Það er í áfengisversluninni hjá okkur í dag. Það er hjá Bónus. En sumar verslanir eru í miklum vandræðum og íbúar borga hátt vöruverð á heilu svæðunum. Það mun verða í þessu líka. Hvar er þá jafnræðið í þeirri umræðu sem verið er að leggja fram hér sem rök og fyrir frelsi verslunar? Hún ræður ekki við að jafna kjör (Forseti hringir.) í landinu hvað þetta varðar frekar en annað. Það rekst því hvað á annars horn (Forseti hringir.) í sambandi við þessa umræðu.