Árásir á íslenska starfsmenn utanríkisþjónustunnar í Kabúl í Afganistan.
Einar K. Guðfinnsson (S):
Virðulegi forseti. Hvað eftir annað hefur þess verið krafist að Íslendingar tækju meiri þátt í friðargæslustörfum. Sú krafa hefur ekki síst komið úr þessum ræðustól. Þess vegna sætir það mikilli furðu að nú skyndilega skuli friðargæslan verða fyrir sérstökum árásum, einkanlega frá þingmönnum Vinstri grænna, m.a. háttvirtum málshefjanda Ögmundi Jónassyni. Hann gengur svo langt að kalla friðargæslustarfsemina „að hreinsa upp eftir bandaríska herinn“. Það er ömurlegur málflutningur.
Má ég minna á að tíu þúsund manns vinna að friðargæslu í Afganistan á vegum NATO og í umboði Sameinuðu þjóðanna sem grundvallast á ekki færri en þremur ályktunum þeirra. Það er ástæða til að undirstrika að íslenskir friðargæsluliðar hafa staðið sig frábærlega við störf sín, bæði í Kosovo og Afganistan. Það leikur enginn vafi á því að vera þeirra og stjórn á alþjóðaflugvellinum í Kabúl átti veigamikinn þátt í að nýafstaðnar kosningar gengu almennt vel fyrir sig. Það er m.a. okkar framlag til að bæta ástandið í þessu hrjáða landi sem árum saman bjó við kúgun og ógnarstjórn hryðjuverkamanna.
Fólk frá 23 þjóðlöndum er þátttakendur á flugvellinum í Kabúl, þar af er fólk frá öllum Norðurlöndunum. Það er huggulegt fyrir þessar þjóðir að vita hvaða einkunnagjöf þær fá fyrir starfsemi sína hjá einstökum þingmönnum á Íslandi.
Ég vil þó undirstrika góðan skilning hv. þm. og formanns Samfylkingarinnar, Össurar Skarphéðinssonar, sem sagði í viðtali við Stöð 2 um daginn um starfsemina í Kabúl, með leyfi virðulegs forseta:
„Þetta er hluti af því að við höfum afráðið sem þjóð, að axla meiri byrðar innan NATO og í alþjóðlegu hjálparstarfi og það þýðir líka að við erum að taka á okkur meiri áhættu. Hvort sem þarna er því um að ræða her eða ekki her erum við þeirrar skoðunar,“ virðulegi forseti, „að Ísland eigi í vaxandi mæli að axla alþjóðlegar byrðar.
Þetta hefðu sumir hv. þingmenn Samfylkingarinnar mátt kynna sér áður en þeir fóru í ræðustól áðan. Það er bókstaflega skylda okkar að tryggja friðargæslufólki allt það öryggi sem á er kostur. (Forseti hringir.) Liður í því er þjálfun og vopnabúnaður þar sem það á við. Ég trúi því ekki að háttvirtir þingmenn, sem hér gera kröfu til þess að allt friðargæslufólk sé dregið frá Afganistan — það hlýtur að vera krafan — ætlist til að gagnvart friðargæsluliðum okkar sé ekki gætt fyllsta öryggis.