133. löggjafarþing — 18. fundur,  1. nóv. 2006.

vaxtarsamningar.

135. mál
[15:09]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Síðustu orð hv. fyrirspyrjanda byggjast á misskilningi. Það er verið að vinna að því að endurskoða svokallað byggðakort og við höfum í sjálfu sér alls ekkert gefið það upp á bátinn að þar verði breytingar einmitt á þeim þáttum sem við ræðum hér um. Ég get fullvissað hann og aðra um að ráðuneytið og ráðherrann munu alls ekki láta neinn mismun koma þar fram gagnvart Suðurnesjamönnum, það kemur ekki til mála að okkar leyti.

Varðandi það sem fyrirspyrjandi og aðrir sem tóku til máls hafa sagt vil ég aðeins geta þess að vaxtarsamningarnir þurfa meiri tíma og meiri reynslu áður en við getum kveðið upp yfir þeim dóm, a.m.k. er alveg tilhæfulaust að kveða upp þann dóm sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson gerði. Það er alls ekki komin sú reynsla á vaxtarsamningana að ástæða sé til þess að fordæma þá með þessum hætti, þvert á móti eru allar ástæður til þess að ætla að þeir séu hið ágætasta tæki og ágætasta aðferð, eins og réttilega kom fram í máli hv. þm. Jóns Gunnarssonar, og ég tek undir viðhorf hans að því leyti.

Norðurland vestra var aðeins nefnt hér líka og það er hægt að upplýsa að það er verið að vinna að vaxtarsamningi fyrir það svæði.