félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu, hún er afar mikilvæg. Í samtölum mínum við verkalýðshreyfinguna varðandi þetta alvarlega mál kom fram að vandinn er stærri og meiri en við gerum okkur grein fyrir. Það er mikilvægt að reyna að átta sig á umfanginu. Í því sambandi er hægt að horfa til þess hversu mörg mál koma á borð stéttarfélaganna, hversu mörg málin eru þar sem verkafólk er hlunnfarið um kaup og kjör. Ég hef upplýsingar um að eitt af stóru stéttarfélögunum hafi á síðasta ári sent út kröfur vegna vangoldinna launa upp á tæpan 1 milljarð kr. Það eru 80 milljónir á mánuði og um 90% allra þessara krafna voru fyrir hönd erlendra starfsmanna hér á landi.
Það er almennt talið að af tíu manna hópi verkafólks sem er hlunnfarið um kaup og kjör séu einungis tveir til þrír sem fara með málið lengra. Ef allir þeir sem hlunnfarnir eru myndu kæra sín mál væri upphæðin hjá þessu eina tiltekna stéttarfélagi ekki 1 milljarður á ári heldur 5 milljarðar kr. Það er veruleg upphæð, og ég segi það að ef hægt er að hlunnfara verkafólk um svo háar upphæðir er eitthvað að eftirlitskerfinu hér á landi. Það skekkir alla samkeppnisstöðu. Það er óþolandi fyrir þá atvinnurekendur sem eru heiðarlegir. Það þarf að bregðast við þessu máli strax, hæstv. félagsmálaráðherra, og það er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Það er brýnt að setja sektarákvæði í lög þannig að þeir sem verða uppvísir að því að brjóta á verkafólki sæti sektum. Það eru síbrotamenn í þessum geira sem stunda kennitöluflakk og hótanir í garð verkafólks. Á því verður að taka. Verksalinn verður að vera ábyrgur gagnvart undirverktaka og verkalýðsfélögin þurfa víðtækari heimildir til gagnaupplýsinga.
Hæstv. félagsmálaráðherra. Það þýðir ekkert að draga málið með því að skipa nefnd og svo aðra nefnd. Tími framkvæmda er kominn. Hæstv. ráðherra hefur nóg af starfsfólki í kringum sig og m.a. tvo aðstoðarmenn á góðum launum. Það er mikið í húfi fyrir allt þetta duglega, erlenda verkafólk sem hér starfar og við þurfum á að halda. Það er einnig mikið í húfi fyrir ríkissjóð.