155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

skipan sendiherra í Bandaríkjunum.

[15:06]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Dæmin eru því miður orðin allt of mörg um það hvernig ríkisstjórnin, sem var hér meirihlutastjórn mest allt kjörtímabilið, hefur staðið í vegi fyrir möguleikum Alþingis að hafa aðhald með framkvæmdarvaldinu. Eitt af mikilvægustu hlutverkum okkar hér á Alþingi er að gæta þess að stjórnsýslan fari vel fram og í samræmi við lög. Hluti af því er að ráðherrum ber að bregðast skjótt og vel við beiðnum um upplýsingar frá nefndum. Það er ítrekað reynt að drepa upplýsingarbeiðnum á dreif, að fresta svörum og reyna jafnvel að loka heilu frumkvæðismálunum þegar þau eru orðin of óþægileg fyrir ráðherra.

Við eigum því miður líka dæmi um það að birting skýrslu er látin tefjast fram yfir kosningar vegna þess að hún kann að koma ráðherra illa eða jafnvel bara að upplýsingum almennt er haldið leyndum nógu lengi (Forseti hringir.) til að þær geti ekki vakið almenning, vakið kjósendur til umhugsunar um misbresti ráðherranna. Hvað er (Forseti hringir.) hæstv. ríkisstjórn að fela með því að svara ekki í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í að verða hálft ár? Hvað þolir ekki dagsljósið?