155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

315. mál
[15:16]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegur forseti. Í gær var eitt ár liðið frá því að Grindavík var rýmd. Síðan þá hefur þingið tekið fyrir mörg mál sem snerta íbúa og fyrirtæki í Grindavík og er þetta eitt af mörgum. Það er ánægjulegt að hafa séð í þessari viku og síðustu að það er samhljómur um að framlengja margar af þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í hingað til vegna þess að það má alls ekki koma niður á Grindvíkingum að ríkisstjórnin hafi sprungið og að hér verði ekki ný ríkisstjórn fyrr en kannski snemma á næsta ári. Þetta þurfum við að passa að gerist ekki og megum við því eiga von á því — ég veit bara að í þeirri nefnd sem ég er í, efnahags- og viðskiptanefnd, erum við að vinna að nokkrum framlengingum og ég veit að í öðrum nefndum er verið að vinna að framlengingum. Þetta eru allt hlutir sem við þurfum að vinna vel í.

Mig langar líka að vekja athygli hv. alþingismanna sem hér eru á því að Grindavíkurnefndin svokallaða hefur lagt fram mikið af tillögum sem þingið og komandi ríkisstjórn þurfa að taka til athugunar. Það er einskær von mín að þeir hv. þingmenn sem sitja hér á næsta kjörtímabili hafi það sem eitt af sínum fyrstu verkefnum að fara yfir þær tillögur og standa með Grindvíkingum.