þingsköp Alþingis.
Forseti. Varðandi mat á tæknilegum möguleikum þá held ég að hv. þingmaður komi nú frekar að tómum kofanum hjá mér í þeim efnum. Hins vegar hefur auðvitað margt verið gert og stöðug vinna í gangi við að auka upplýsingamiðlun á vef þingsins og auka aðgang að þeim upplýsingum sem hér eru fyrir hendi. Ég hef heyrt sjónarmið hv. þingmanns um breytingar á útsendingum frá þingfundum og annað þess háttar og hef nú ekki tekið afstöðu til þeirra. Ég er frekar íhaldssamur í þessum efnum en held að það hljóti að vera til stöðugrar endurskoðunar hvernig hægt sé að koma því sem hér fer fram á vettvangi þingsins betur á framfæri þó að það tryggi kannski ekki að þeir sem um málefni þingsins fjalla, hvort sem það er í fjölmiðlum eða annars staðar, séu vel upplýstir. Við getum reynt að tryggja aðgang að upplýsingum en það hvernig menn nýta þann aðgang og hvernig menn nýta sér þær upplýsingar er kannski úr okkar höndum. En það að koma því vel á framfæri sem hér gerist er auðvitað stöðugt og viðvarandi viðfangsefni og viðfangsefni sem ég veit að bæði núverandi þingmenn, framtíðarþingmenn og ekki síst starfsfólk Alþingis tekur mjög alvarlega.