142. löggjafarþing — 18. fundur,  1. júlí 2013.

veiðigjald.

15. mál
[16:44]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það frumvarp sem hin frjálslynda miðjustjórn sem ríkir hér hefur lagt fram er ekki lagt fram til einskis. Það er lagt fram til þess að leiðrétta það sem hv. þm. Edward H. Huijbens kallaði áðan annmarka eða vandkvæði við lög sem samþykkt voru á þingi í fyrra. Að kalla það vandkvæði að ekki sé hægt að innheimta gjald samkvæmt lögunum, það er ekki hægt að innheimta gjald samkvæmt efni þeirra, er líkt og að segja að opið fótbrot sé minni háttar áverki.

Ég vil hins vegar benda á að það var ákveðinn misskilningur í máli hv. þingmanns sem ég vil gjarnan eiga við hann orðastað um. Í fyrsta lagi: Hvaðan fær hann þessa 100 milljarða króna tölu um hagnað í greininni? Í öðru lagi vil ég vekja athygli hans á því að samkvæmt þeim breytingum sem meiri hluti atvinnuveganefndar hefur gert á þessu frumvarpi munu stærstu fyrirtæki landsins greiða 75% af sérstöku veiðigjaldi, með öðrum orðum LÍÚ. Eru það þau samtök sem hv. þingmaður er að berjast fyrir? Það sem þetta frumvarp gerir hins vegar er að eftirstöðvar af því gjaldi sem verður innheimt, þ.e. eftir þessi 75% sem stærstu fyrirtækin greiða, þetta er sett á til þess að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Frítekjumarkið sem var talað um áðan dugar þeim ekki, þau eru samt stærri en það, en þetta verður til þess að tryggja betur til framtíðar meðalstór og lítil fyrirtæki í sjávarútvegi.

Hverjir borga? Þeir sem hafa bolmagn til þess. Stærstu fyrirtæki Íslands borga 75% af sérstöku veiðigjaldi.