félagsleg undirboð og svik á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir að efna til umræðu á Alþingi um þessi mikilvægu mál.
Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að farið sé að lögum og reglum gagnvart réttindum launafólks á vinnumarkaði og að hið opinbera geri sitt til að sinna eftirliti og stuðla að heilbrigðum og réttlátum vinnumarkaði.
Þær spurningar sem hv. þingmaður kom inn á tengjast allar með einum eða öðrum hætti og snúast um hvað fyrirhugað sé að gera til að vinna gegn brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði og fyrirbyggja að brot fái hér þrifist.
Ég vil byrja á að segja að unnið er að frumvarpi til breytinga á lögum um útsenda starfsmenn og fleiri lögum sem varða vinnumarkaðsmál og fer sú vinna fram í víðtæku samráði m.a. í samvinnu við stéttarfélög. Það samstarf er á lokastigi og stendur til jafnvel í næstu viku að senda það frumvarp í opna kynningu. Markmiðið er síðan að það verði lagt fram á Alþingi áður en frestur til að leggja fram ný mál rennur út. Þeim lagabreytingum er m.a. ætlað að tryggja upplýsingaflæði milli aðila sem fara með eftirlit á vinnumarkaði til að koma í veg fyrir að brotastarfsemi þrífist hér á landi. Megintilgangur lagabreytinganna er að auðvelda framkvæmd laga um útsenda starfsmenn. Markmiðið er m.a. að veita íslenskum stjórnvöldum betri yfirsýn yfir stöðuna á innlendum vinnumarkaði að því er varðar starfsemi erlendra þjónustuveitenda, þar með talið starfsmannaleigna, fjölda og stöðu erlendra starfsmanna sem starfa hjá slíkum fyrirtækjum hérlendis. Ekki síst er markmið áformaðra lagabreytinga að styrkja eftirlit með kjörum erlendra starfsmanna sem sendir eru tímabundið hingað til lands á vegum erlendra fyrirtækja í tengslum við veitingu þjónustu hér á landi eða á vegum starfsmannaleigna þannig að laun og önnur kjör séu í samræmi við ákvæði laga um gildandi kjarasamninga í viðkomandi starfsgreinum á því svæði þar sem vinnan fer fram.
Með þessu á að koma í veg fyrir að þátttaka erlendra starfsmanna á vinnumarkaði, þar með talið í gegnum erlend fyrirtæki og starfsmannaleigur, leiði til félagslegra undirboða hér á landi.
Frumvarpinu er jafnframt ætlað að stuðla að jafnri samkeppnisstöðu fyrirtækja, eins og hv. þingmaður kom inn á í máli sínu áðan, sem starfa á innlendum vinnumarkaði, hvort sem þau eru innlend eða erlend. Mikilvægt er í því sambandi að tryggja að fyrirtæki geti ekki með lögbrotum, t.d. með því að brjóta kjarasamninga á starfsfólki, skapað sér betri samkeppnisstöðu en fyrirtæki sem virða vinnumarkaðslöggjöfina.
Jafnframt er í vinnu setning laga um keðjuábyrgð, en það er einnig mikilvægt skref til að tryggja útsendum starfsmönnum þau laun sem þeim ber samkvæmt kjarasamningum.
Eins og ég sagði áðan eru þessi frumvörp á lokastigi og meiningin er að þau verði lögð fram áður en frestur til að leggja fram ný þingmál rennur út. Ég vonast til að þau frumvörp fái góða meðferð á þinginu og verði kláruð á þessu vorþingi ef mögulegt, vegna þess að þetta er brýnt mál eins og hv. þingmaður kom inn á.
Að þessu viðbættu er auðvitað gríðarlega mikilvægt að við aukum eftirlit með vinnumarkaðnum. Þar er mikilvægt að það sé víðtækt samstarf stjórnvalda, samstarf þvert á stofnanir með virkri þátttöku aðila vinnumarkaðarins.
Virk upplýsingagjöf, forvarnir og fræðsla er mikilvægur liður í því að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Þar vinnur Vinnumálastofnun mikilvægt starf og er ætlað veigamikið hlutverk samkvæmt lögum í þeim efnum. Vinnumálastofnun hefur þegar sett á fót upplýsingavefinn posting.is fyrir erlenda þjónustuveitendur sem koma hingað tímabundið til lands og veita hér þjónustu. Hugsunin á bak við það er að þar sé hægt að finna upplýsingar um kaup og kjör sem gilda á íslenskum vinnumarkaði, upplýsingar um vinnuvernd, upplýsingar um skattgreiðslur og fleira. Þar er líka hægt að finna upplýsingar frá ýmsum aðilum sem koma að eftirliti, ríkisskattstjóra, Þjóðskrá, Tryggingastofnun og fleiri aðilum.
Vinnumálastofnun vinnur líka að gerð nýs fræðsluvefs í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, ferðaþjónustuna, verslunarinnar og iðnaðarins. Vefurinn er liður í þátttöku Vinnumálastofnunar í norrænu samstarfi um forvarnir gegn misnotkun og misbeitingu starfsfólks, þar með talið vinnumansali.
Eins og ég sagði áðan krefst eftirlit á vinnumarkaði víðtæks samstarfs og Vinnumálastofnun gegnir þar ríku hlutverki. Hún á í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins um eftirlit, en hefur undanfarið unnið að því í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins að skýra skilin milli þess eftirlits sem stofnunin fer með samkvæmt lögum og þess eftirlits sem telja má eðlilegt að aðilar vinnumarkaðarins sinni.
Virðulegi forseti. Ég hefði getað sagt margt fleira en tíminn er því miður á þrotum. En ég þakka hv. málshefjanda fyrir að taka þetta mál hér upp. Það er gríðarlega mikilvægt og ég vænti góðs samstarfs við hv. þingmann og aðra þingmenn um þau mál sem væntanleg eru til þingsins.