155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

skipan sendiherra í Bandaríkjunum.

[15:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Nú ætla ég ekki að fara að taka sérstaklega til máls um þetta tiltekna mál sem hér var borið upp en í máli þingmanna hefur borið á því að hér sé bara stjórnsýslan öll saman meira og minna lömuð og svari ekki nokkrum sköpuðum hlut. Ég ætla bara andmæla því. Ég ætla einfaldlega að segja við hv. þingmenn: Komið þið þá með dæmin. Ég er þess fullviss og sannfærður um að einstaka ráðherrar, alla vega sá sem hér stendur, reyna að svara þinginu eins vel og hægt er. Stundum eru spurningarnar það yfirgripsmiklar að það þarf að óska eftir tímafresti en mér finnst ekki þægilegt og ekki sanngjarnt og ekki réttlátt að draga alla ráðherra og allt framkvæmdarvaldið undir einn hatt þegar verið er að taka tillit til eins máls.