155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

skipan sendiherra í Bandaríkjunum.

[15:11]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Bara vegna þess að virðulegur forseti upplýsti hér áðan að hann hefði þær upplýsingar að svörin væru alveg að fara að koma þá má ég til með að upplýsa forseta um að þetta er gömul tugga. Ritari stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur ítrekað gengið á eftir þessum svörum. Tvisvar sinnum í októbermánuði fékk ritarinn einmitt svörin að þetta væri alveg að fara að koma. Nú erum við komin hálfa leiðina inn í nóvember og enn er þetta alveg að fara að koma frá ráðuneytinu, svör sem eru nú ekki meira en bara að afhenda skjöl sem að megninu til eiga að vera til í ráðuneytinu. Þetta er ekki mest íþyngjandi vinna sem stjórnsýslan getur lagst í, að senda afrit úr málaskrá til nefndar Alþingis. Þetta var alveg að koma í október, þetta var alveg að koma aftur í október og nú segir forseti að þetta sé alveg að fara að koma. Ég ætla bara að biðja forseta að trúa því ekki eins og nýju neti heldur ganga í alvöru á eftir því fyrir hönd þingsins alls.