155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

þingsköp Alþingis.

323. mál
[15:40]
Horfa

Flm. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla nú ekki að fara í hártoganir við hv. þingmann um þetta en ég vil hins vegar geta þess að í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstólsins í vor var farið í vinnu af hálfu skrifstofu Alþingis við að meta hvað væri hægt að gera og það að þetta frumvarp birtist núna er auðvitað afrakstur af þeirri vinnu. Ég sá fyrir mér sem forseti að við hefðum veturinn til að ljúka þessari vinnu. Það að efnt var til kosninga í lok nóvember var ekki inni á planinu. Við sáum fyrir okkur að það væri meiri tími til stefnu í þeim efnum.

Ég vildi hins vegar geta þess, af því að ég kom ekki inn á það í fyrra svari mínu, að það eru auðvitað breytt kosningalög frá því er var 2021 og þar á meðal er gert ráð fyrir ríkara hlutverki landskjörstjórnar. Þar er líka gert ráð fyrir sérstakri úrskurðarnefnd sem tekur tiltekin álitamál fyrir, þannig að að því leyti erum við þegar í breyttu lagaumhverfi. Hins vegar er öllum ljóst að þetta er ekki endanleg niðurstaða eða endanlegar lyktir þessa máls heldur einungis þær nauðsynlegu lagabreytingar sem ég tel að sé mikilvægt að koma í gegn núna í þeim þrönga tímaramma sem við höfum.