155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

þingsköp Alþingis.

323. mál
[15:42]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta Birgi Ármannssyni fyrir að leggja til að framtíðarnefnd fái að starfa a.m.k. ár til viðbótar að óbreyttu. Í því samhengi vil ég lýsa þeirri skoðun minni að hér sé um að ræða vanmetið starf. Það var löngu tímabært að koma slíkri nefnd á fót og hafandi setið í fjórum nefndum á vettvangi þingsins vil ég segja að í þessari nefnd hefur gefist andrými og svigrúm til skoðanaskipta, vangaveltna, upplýsingaöflunar af þeim toga sem ég hefði gjarnan viljað sjá meira gert af í hinum hefðbundnari nefndum þingsins. Ég tel einmitt að við óttuðumst það sum að það ætti að blása þessa nefnd af en ég fagna því að það skuli vera til a.m.k. árs gefinn tími til að meta störfin og gildi hennar. Ég bendi í því samhengi á að Finnar hafa rekið framtíðarnefnd um langt árabil og úr þeirri framtíðarnefnd hefur síðan verið dreift upplýsingum inn í nánast allar þingnefndir finnska þingsins, til mikilla bóta fyrir þau þingstörf öll. Ég sé fyrir mér að slíkt megi gerast með þá framtíðarnefnd sem hér hefur starfað þau þrjú ár sem nú eru senn að baki.

Mig langar til að spyrja hæstv. forseta hvort hann sæi ekki ástæðu til þess að mæla með því að framtíðarnefnd verði sett á til langrar framtíðar og gert að vinna af þeim mun meiri þrótti hikstalaust.