155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

þingsköp Alþingis.

323. mál
[16:08]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka Sigþrúði Ármann fyrir sitt innlegg hér. Þetta er þörf og mikilvæg umræða og ég er viss um að bæði Ármann og Frímann geta náð sátt og lendingu í þessari umræðu. Að sjálfsögðu er búið að kippa tilverugrundvelli undan mörgum fjölmiðlum með tæknibyltingunni, eins undarlega og það kann að hljóma, rétt eins og tæknibyltingin kippti fótunum undan hljómplötusölubransanum og bókasölubransanum að einhverju leyti. Inn hafa komið áskriftarmódel eins og Storytel og Spotify og annað slíkt og áskriftarmódel sem misvel gengur að halda við og þess vegna hafa komið til ríkisframlög, til þess einmitt að reyna að styðja við fjölmiðla. Ég tek undir að Morgunblaðið er að gera það af mikilli reisn, bæði núna í prentmiðlum, eiginlega síðasta blaðið sem eftir er fyrir utan Heimildina sem hægt er að fletta af svona frétta- og samfélagsumfjöllunarmiðlum. Ég er fylgjandi því að við reynum að efla okkur í öllu þessu og það að standa vörð um upplýsta umræðu er númer eitt. En það sem ég er sérstaklega að víkja að er að við nýtum það sem við höfum í þessum sal. Þó að við séum að standa hér vörð um hinn klassíska arkitektúr og uppruna hússins og alls þessa þá á húsið að þjóna þjóðinni. Húsið á ekki að þjóna einhverjum löngu látnum arkitektum eða þjóðminjavörðum. Við eigum að nýta þetta hús og þann búnað sem í því er til þess að gera þetta að besta mögulega vinnustað, besta mögulega fundarsal og þá búinn þeim gögnum sem menn þurfa almennt að grípa til í ræðupúltum í öllum fundarsölum á landinu nema þessum. Ég hef bent á þetta áður, en ég segi: Fáum hér til starfa einn af starfsmönnum þingsins við það að gera útsendingu þingsins eins upplýsandi og fræðandi (Forseti hringir.) og hún getur mögulega orðið, studd af öllum fyrirliggjandi gögnum og sérlega unnum. Þá mun okkur betur farnast í upplýstri umræðu á vettvangi þjóðmála.