157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjárframlög til Ljóssins og niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu.

[10:57]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir hennar svar. Það hefur hryggt mig í þeim svörum sem hafa komið frá stjórnarliðum, og nú er ég ekki að tala um svar hæstv. utanríkisráðherra, að það er svarað með einhverjum bjúrókratískum svörum um útfærsluna, þetta hafi verið einskiptisaðgerð og annað þegar þetta eru pólitískar ákvarðanir um það í hvað við setjum peningana. Nú er sagt að svigrúmið sé ekki. Samt var svigrúm til þess að setja 2–3 milljarða í að stækka Þjóðleikhúsið. Svo hafði félagsmálaráðherra allt heimsins svigrúm til þess að lögfesta tengingu bóta við launavísitölu og brjóta þannig gegn öllum grunngildum laga um opinber fjármál í andstöðu við fjármálaráð og fjármálaráðuneytið. Þá er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.

Því vil ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra og formann Viðreisnar hvort hún sé hlynnt því að þingið takmarki útgjaldaaukninguna sem ríkisstjórnin hefur boðað í fjárlögum svo unnt sé að skapa þinginu ríkara svigrúm til þess að auka fjárframlög til góðra málefna á móti, eins og Ljóssins sem sparar ríkinu yfir milljarð á ári með starfsemi sinni, milljarða á ári. (Forseti hringir.) Við getum tekið af öðrum áherslumálum og forgangsmálum ríkisstjórnarinnar og sett í mál sem eru ekki bara þjóðþrifamál og góð mál fyrir þá sem njóta þjónustunnar heldur spara ríkissjóði stórar upphæðir.