150. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2019.

störf þingsins.

[15:19]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ársfundur Vestnorræna ráðsins er fram undan hjá okkur sem erum í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Hann verður haldinn í Nuuk á Grænlandi. Íslandsdeildin er nýbúin að heimsækja sendiskrifstofur Færeyja og Grænlands í Reykjavík og var það mjög fróðlegt og uppbyggilegt. Ráðstefnan Arctic Circle er nýafstaðin og þar kom fjöldi þjóða saman og tók þátt í að ræða málefni norðurslóða. Þar voru umhverfismálin, loftslagsmálin og líf þeirra sem búa á þessum slóðum í brennidepli og Vestnorræna ráðið var þar með áhugaverðar málstofur. Við þekkjum það að í breyttum heimsveruleika eru bæði tækifæri og áskoranir fyrir þessar vestnorrænu þjóðir.

Við munum eftir áhuga forseta Bandaríkjanna á að kaupa Grænland eins og það er hrokafullt að ætla sér það. Við höfum átt gott, merkilegt og mikilvægt samstarf þarna í seinni tíð og í gegnum árin. Þetta er yfir 30 ára samstarf á vettvangi vestnorrænna þjóða, Grænlands, Íslands og Færeyja. Alltaf hefur ríkt skilningur og góð samstaða óháð því að þessar þjóðir tala hver sitt tungumál. Það er líka mjög mikilvægt að vernda tungumálin á vestur-norðurslóðum. Við höfum átt samstarf í heilbrigðismálum, mennta- og menningarmálum, íþróttamálum og björgunarmálum svo eitthvað sé nefnt og núna liggur fyrir þinginu að eiga samstarf um kvikmyndagerð og endurgreiðslu ef upptökur á kvikmyndum á Íslandi eru líka á Grænlandi og í Færeyjum. Mér finnst þetta samstarf hafa gengið mjög vel og við eigum að halda því áfram og efla það sem mest. Það hefur skilað okkur miklu, bæði í góðum vinskap og skilningi þessara þjóða, og við látum ekki tungumálin trufla okkur þar (Forseti hringir.) af því að við skiljum hvert annað og getum leitað leiða til að gera það með ýmsum hætti eins og með túlkun.