stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Hæstv. forseti. Góðir landsmenn. Til hamingju með fullveldisdaginn. Það er auðmjúkur maður sem hér stendur og flytur ræðu sem ráðherra í fyrsta sinn. Málaflokkur heilbrigðisþjónustu er stór í öllu samhengi. Frábært starfsfólk heilbrigðisráðuneytisins hefur tekið vel á móti mér í vikunni. Verkefnin eru ærin. Heilbrigðismálin eru og ættu að vera okkur öllum ofarlega í huga, enda heilsan ein okkar dýrmætasta eign. Heimsfaraldurinn hefur í raun minnt okkur rækilega á þá staðreynd. Við slíkar aðstæður kjarnast oft hlutirnir. Við höfum reynt styrkinn í heilbrigðiskerfinu og baráttuviljann sem hefur komið bersýnilega í ljós og verða afrek heilbrigðisstarfsfólks seint fullþökkuð.
Á hinn bóginn hefur hið mikla álag, aukaálag, sem fylgir slíkum aðstæðum einnig afhjúpað undirliggjandi veikleika í kerfinu. En það gefur um leið tækifæri til að bregðast markvissar við. Það er forgangsmál þessarar ríkisstjórnar að snúa vörn í sókn, að styrkja og efla gott heilbrigðiskerfi, því að það hefur sannast að styrkur velferðar er ekki síst mældur í sterku og samkeppnishæfu heilbrigðiskerfi. Viljann á þeirri vegferð nú og til framtíðar má vel lesa í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þegar við horfum til raunaukningar framlaga til rekstrar og til fjárfestinga, en stærsta einstaka fjárfestingarverkefnið er bygging nýs Landspítala. Starfið sem fram fer hvern einasta dag í heilbrigðiskerfinu, þar sem kraftaverk eru í raun unnin, er þó ávallt í forgrunni. Og áfram er unnið að því að byggja undir fjármögnun rekstrar og með aðgerðum að bæta aðbúnað og auka viðbragðsgetu kerfisins. Ég nefni hágæslurými, 30 ný endurhæfingarrými og farsóttardeild Landspítala í Fossvogi. Mikilvægt er að styrkja og efla gjörgæsludeildir og bráðamóttöku Landspítala og horfa til þess að það verði eftirsóknarvert að sinna störfum í heilbrigðisþjónustu.
Kæru landsmenn. Við verðum hins vegar að muna að horfa á heilbrigðiskerfið og heilbrigði þjóðarinnar í stærra samhengi. Það er grundvallarréttlætismál að aðgangur allra að heilbrigðisþjónustu sé tryggður. Heilbrigðiskerfið verður að geta þjónað hverjum og einum innan skilgreinds biðtíma. Einstaklingurinn og þjónustan við hann eru í fyrirrúmi. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra að lögð sé aukin áhersla á forvarnir, lýðheilsu og geðheilbrigðismál. Það verða forgangsmál okkar á þessu kjörtímabili, að þróa heilbrigðiskerfið í takt við framtíðina. Lærdómur síðustu missera, þar sem okkur hefur tekist að lágmarka skaðleg áhrif af stærstu áskorun sem mannkynið hefur staðið frammi fyrir lengi, hlýtur að vera sá að samvinna og samstaða skiptir öllu máli og er forsenda árangurs. — Góðar stundir.